Klukkaður eða sagði hún að ég væri klikkaður?

Að skrifa um pólitík í dag væri bara of auðvelt í dag, eins og að sparka í liggjandi mann.  Stöndum ekki í því.  Var "klukkaður" af góðri Maddömu eins og það kallast á bloggnördísku og má til með að taka þeirri áskorun.  Úr því varð þessi bók sem hér fer á eftir.  Tek fram að þetta er ekki í neinni sérstakri röð.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  1. Áfylling fyrir Egils í stóru matvöruverslunum á Húsavík.  Fyllti þar m.a. á Pepsi sem var einkennileg upplifun fyrir Coke-fíkil.
  2. Afgreiðsla á MS-vörum í Mjólkursamlagi KÞ á Húsavík (MSKÞ).  Stórkostlegur vinnustaður en það var stundum kalt í kælinum.
  3. Afgreiðsla í timburdeild KÞ Smiðjunnar á Húsavík.  Jákvæðasti maður heims, Jón Þormóðs, vinnur þarna og ekki getur manni leiðst með slíkan mann sér við hlið.  Fer aftur til Nonna þegar krepputalið gengur endanlega fram af manni, hann er maðurinn til að koma geðheilsunni í jafnvægi á ný.
  4. Tölvunarfræðingur hjá VÍS í Reykjavík.  Besti vinnustaður landsins, þess vegna er maður svona þaulsetinn, ekki orð um það meir.


Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

  1. Pulp Fiction
  2. Kill Bill
  3. Sin City
  4. Waiting...


Waiting er kannski ekki allra besta mynd sem ég hef séð en í miklu uppáhaldi.  Of fáir hafa séð hana, bráðfyndin og hæfilega barnalegur húmor fyrir barnalegt fólk eins og mig.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  1. Baldursbrekkan á Húsavík.  Þarna eiga börn að alast upp ef þess er kostur, tryggir vel heppnaða útkomu.
  2. Gullteigurinn í Reykjavík.  Staður með sál, góða nágranna og sambýlinga en versta þvottahús landsins.  Jafn langt í þvottahúsið og í efnalaug.
  3. Gullengið í Grafarvoginum.  Pollrólegt, fjölskylduvænt og göngufæri í allt sem maður þarf (f.utan vinnu auðvitað!).  Sumir miðborgarbúar átta sig ekki á því að til er fólk sem finnst fínt að búa þar sem ekki er verslunarmannahelgi allt árið um kring.  Þú þarft sem sagt ekki að vorkenna mér Hallgrímur Helga, það vantar ekkert í lífið hjá manni þó ókunnugt fólk mígi ekki vikulega í garðinn hjá manni.
  4. Wimbledon hverfi í London hjá Jóni Baldvinssyni biskup (þáverandi sendiráðsprestur) og Möggu konu hans.  Bjó ekki þar í hefðbundnum skilningi en ég, Kristján Þór og Unnar vorum alltof þaulsetnir til að geta talist normal gestir.  Ótrúleg gestrisni og höfðingsskapur sem við fengum þar að kynnast hjá fólki sem þekkti 2/3 okkar ekkert fyrir komuna.  Jón þyrfti að verða biskup yfir Íslandi, þá yrði Þjóðkirkjan vinsælli en íslenska handboltalandsliðið.


Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. The Office (bæði UK og US útgáfurnar)
  2. Klovn
  3. Gettu betur
  4. Scrubs

Enski boltinn í HD væri á þessum lista ef 365 hefði það ekki að höfuðmarkmiði að fæla mig frá viðskiptum við þá.

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. London.  Stórkostleg borg, alltaf eitthvað að gerast, endalaust magn af tónleikum.
  2. Fjárhóll í Reykjadal, S-Þing.  Nýja ættaróðalið í dal dala, næ vonandi milljón heimsóknum þangað áður en yfir líkur.
  3. Zufikon í Sviss.  Kannski ekki algengasti sumarleyfisstaðurinn en einn sá besti ef fólk er með réttu ættartengslin!
  4. Hlíðarendi í Bárðardal.  Fór í heyskap og sauðburð flest sumur sem krakki, væri ekki samur ef ég hefði ekki fengið að upplifa þá snilld!  Ingvar, Aníta, Ella Sigga, Erlingur og Ingvar, þið megið setjast uppá mig hvenær og hvar sem er, þið eigið inni amk 5000 gistinætur. 


Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

  1. eyjan.is
  2. dimeadozen.org  (lögleg tónlistar torrent, himnaríki bootlegga safnarans)
  3. facebook.com (var næst síðastur í heimi til að skrá mig, er leiðinlegasti vinurinn sem fólk getur átt þarna ef mælt er í svöruðum requests).
  4. m5.is (ætti ekki að gera það en geri samt)

Fernt sem ég held upp á matarkyns:

   1. Hamborgarar
   2. Allt á Austur Indíafjelaginu
   3. Heitir brauðréttir
   4. Coca Cola (er það ekki matarkyns?)

Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:

  1. Fjárhóll í Reykjadal.
  2. Við Geysi í Haukadal.  Goshverir eru málið, að fylgjast með Strokki er einhver besta afþreying sem völ er á.
  3. Húsavík.  Örlítið fyrirsjáanlegt kannski.
  4. Þar sem ég er, heima.  Hér er fólkið mitt og heima er nú bara alltaf best.
  5. Í Bónus að bíða í röð við kassana.  Eða ekki.

(útlönd eru ekki málið í dag)

Fjórar hljómsveitir eða tónlistarmenn sem ég held upp á:

  1. Pearl Jam
  2. Eddie Vedder
  3. The Cardigans
  4. The Libertines


Fjórir bloggarar sem ég klukka:

  1. Davíð Oddsson.  Getur birt niðurstöðurnar á sedlabanki.is eða sent mér bara bréf með svörunum, ég skal birta þetta.
  2. Sarah Palin.  Það væri fróðlegt.
  3. og fjögur.  Snæþór og Alma, þetta vekur þau kannski af bloggdvalanum!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Hermannsson

Sammála með Baldursbrekkuna.....Það hafa eingöngu komið stórkostlegir einstaklingar þaðan.

En held að það gangi seint þetta með Davíð. Síðast þegar ég vissi kunni hann ekki að opna tölvupóst, hvað þá að lesa blogg hjá framsóknarmanni.(hehe).

Góðar stundir. 

Ragnar Hermannsson, 4.10.2008 kl. 11:48

2 identicon

Það ætlar kannski bara að takast hjá þér ...

alman (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 13:40

3 identicon

sælir,

þetta þótti mér athyglisvert...þetta feitleitraða

"Gullengið í Grafarvoginum.  Pollrólegt, fjölskylduvænt og göngufæri í allt sem maður þarf (f.utan vinnu auðvitað!).  Sumir miðborgarbúar átta sig ekki á því að til er fólk sem finnst fínt að búa þar sem ekki er verslunarmannahelgi allt árið um kring.  Þú þarft sem sagt ekki að vorkenna mér Hallgrímur Helga, það vantar ekkert í lífið hjá manni þó ókunnugt fólk mígi ekki vikulega í garðinn hjá manni."

Sem íbúi 101 verð ég líka að benda á að stríðsástandið sem ríkir við skemmtistaði  rvk á ekki við allan miðbæinn...þar sem ég bý verð ég ekki var við mannaferðir...jafnvel þó það sé í göngufæri hehe

kveðjur í grafarvoginn

rolli (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 19:24

4 Smámynd: Karl Hreiðarsson

Raggi: enga svartsýni, Davíð hefur ekkert betra að gera þessa helgina en að lesa blogg! ;-)

Rölli: ég veit það vel enda stærstur hluti miðbæjarins tiltölulega rólegur, mátti bara til með að fá útrás fyrir smá pirring útí þennan útbreidda misskilning sumra að fólk velji sér ekki að búa í úthverfi, heldur sé dæmt til þess vegna þess að það er flugvöllur í Vatnsmýri eða af öðrum ástæðum.  Ég myndi reyndar helst kjósa að búa í Vatnsmýrinni samhliða flugvellinum enda hvergi betra útsýni til að fylgjast með flugvélatraffík!

Karl Hreiðarsson, 5.10.2008 kl. 19:50

5 identicon

nei enda rétt hjá þér Karl, sumar 101 rottur skilja ekki aðð hægt sé að búa fyrir utan 101 og hva þá úti á landsbyggð....en aftur á móti skilja sumir fyrir utan 101 ekki 101, halda bara að hér sé stríðsástand allar helgar og daga og varð því að setja þennan punkt með í umræðuna.

rolli (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 09:05

6 Smámynd: Fanný Guðbjörg Jónsdóttir

Asskoti gaman að svona klukkum. Maður lærir svo mikið á þig og hvað við eigum sameiginlegt félagi.
Kók og Kill Bill... Klassískt

Fanný Guðbjörg Jónsdóttir, 15.10.2008 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og átján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband